Netnámskeið um ,,Að sækja um Vinnustaðanámssjóð"
Opið fyrir umsóknir í Vinnustaðanámssjóð
Fyrirtæki geta nú sótt um styrki til að taka við nemendum í vinnustaðanám eða starfsþjálfun.
Hefur þú verið með nema i vinnustaðanámi?
Umsóknarfrestur er til 10. nóvember 2026 kl. 15:00. En netnámskeiðið er mánudaginn 26. október klukkan 8:30.
Hvaða pappíra þarf að hafa klára?
Hver getur sótt um vinnustaðanámssjóð?
Vinnustaðanámssjóður veitir styrki til fyrirtækja sem taka við nemendum í löggiltum iðngreinum eða heilbrigðis-, félags- og umönnunargreinum á framhaldsskólastigi þar sem vinnustaðanám eða starfsþjálfun er skilgreindur hluti námsins.
Markmið sjóðsins er að hvetja fyrirtæki til að taka þátt í menntun og þjálfun framtíðarstarfsfólks og auðvelda nemendum að ljúka tilskildu vinnustaðanámi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla.
Fjárhæð styrkja ræðst af fjárveitingum til sjóðsins og fjölda umsókna. Breyttar reglur voru innleiddar síðasta haust. - Netnámskeið og staðnámskeið.
Umsóknum skal skila rafrænt í gegnum umsóknarkerfi Rannís.