

Spítalinn okkar heldur málþingið „Heima væri best“
Landssamtökin Spítalinn okkar bjóða til málþingsins: Heima væri best.
Ókeypis er á viðburðinn og hvetjum við alla til að mæta.
Dagskrá:
15:30 Opnunarorð formanns
Þorkell Sigurlaugsson, formaður Spítalans okkar.
15:35 Spítalinn heim: Heimaspítali HSU
Fjallað verður um starfsemi Heimaspítala HSU í Árborg. Hvað er heimaspítali og af hverju er HSU að reka heimaspítala.
Sæbjörg L. Másdóttir, teymisstjóri á Heimaspítala HSU.
15:45 Get ég verið heima? Reynsla krabbameinsþjónustu af 21 mánaða þjónustu heimaspítala.
Ásdís Ingvarsdóttir, teymisstjóri heimaspítala krabbameinsþjónustu Landspítala.
15:55 Heimaspítali Landspítala – Vegferð til framtíðar
Fjallað verður um vegferð Landspítala í þróun og uppbyggingu heimaspítala, stöðu yfirstandandi verkefna og mótun stefnu Landspítala um framtíð heimaspítala.
Anna María Sighvatsdóttir, miðlægur verkefnastjóri á verkefnastofu Landspítala.
16:05 Sjálfstæð búseta ævina alla – áskoranir samfélagsins vegna öldrunar þjóðarinnar
Samfélagið er illa undirbúið undir þá miklu fjölgun eldra fólks sem verður á næstu árum. Sigurður Stefánsson fjallar um húsnæði fyrir eldra fólk sem félagslegan innvið. Kynnir Gunnarshólma sem dæmi um byggð sem er hönnuð frá grunni til að styðja sjálfstæða búsetu og vinna gegn einmanaleika og hrörnun. Pálmi V. Jónsson fjallar um heilbrigðisþjónustuna sem áformuð er í Gunnarshólma og hvernig hún getur létt álagi af Landspítala með því að draga úr innlögnum og auðvelda útskriftir þegar sérhæfðri meðferð lýkur.
Sigurður Stefánsson, framkvæmdastjóri Aflvaka þróunarfélags.
Pálmi V. Jónsson, lyf- og öldrunarlæknir.
16:25 Vegurinn heim
Í fyrirlestrinum bendir Guðjón á einfaldar leiðir fyrir fjölgun hjúkrunarrýma ásamt leiðum til að fólk verði heima lengur á hagkvæmari hátt en að bíða eftir ,,skóflustungu plássi“.
Guðjón Sigurðsson, formaður MND á Íslandi.
16:45 Pallborðsumræður og spurningar
17:00 Fundarslit
Fundarstjóri:
Árni Már Haraldsson, deildarstjóri gjörgæslu Landspítala Hringbraut og stjórnarmaður Spítalans okkar.