

Haustfundur Faxaflóahafna 2026
Haustfundur Faxaflóahafna verður haldinn þriðjudaginn 27. október klukkan 14:00 í Vör við Viðeyjarsund.
Á fundinum verður farið yfir rekstur, framkvæmdir og framtíðaráform Faxaflóahafna, rætt um sóknarfæri í ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu og hlutverk hafna og innviða í ljósi breyttrar stöðu öryggis- og varnarmála í heiminum.
Dagskrá:
Brynjar Níelsson, stjórnarformaður Faxaflóahafna – Setning fundar
Gunnar Tryggvason, hafnarstjóri – Rekstur og verkefni Faxaflóahafna
Inga Rut Hjaltadóttir, sviðsstjóri framkvæmdasviðs – Framkvæmdir og framtíð hafnanna
Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins – Skemmtiferðaskip og sóknarfæri í ferðaþjónustu
Auðunn F. Kristinsson, framkvæmdastjóri stefnumótunar, áætlana og þróunar hjá Landhelgisgæslu Íslands - Hafnir og mikilvægir innviðir í breyttu öryggisumhverfi
Umræður og fyrirspurnir
Fundarstjóri: Eldar Ástþórsson, markaðs- og samskiptastjóri Faxaflóahafna.
Fundurinn er opinn öllum á meðan húsrúm leyfir. Nauðsynlegt er að skrá sig. Aðilar með starfsemi á hafnarsvæðum Faxaflóahafna eru sérstaklega hvattir til að mæta.