

Föstudagskaffi Mýrarinnar 22. maí: FÖNN Ráðgjöf • Reynslusögur úr ráðgjöf • Stuðningur við sprotafyrirtæki • Vaxtatækifæri í lífvísindum
Föstudagskaffi Mýrarinnar 22. maí
FÖNN Ráðgjöf
Reynslusögur úr ráðgjöf • Stuðningur við sprotafyrirtæki • Vaxtatækifæri í lífvísindum
Mýrin | Frumkvöðlasamfélag Vísindagarða
Gróska 1. hæð kl. 9.30
Í næsta föstudagskaffi Mýrarinnar (frumkvöðlaseturs Vísindagarða, Gróska 1. hæð) fáum við heimsókn frá Dr. Söndru Mjöll Jónsdóttur-Buch frá FÖNN Ráðgjöf.
Sandra er frumkvöðull, stjórnendamarkþjálfi og ráðgjafi með víðtæka reynslu úr íslensku nýsköpunar- og lífvísindaumhverfi. Hún hefur komið að uppbyggingu og leiðsögn fjölmargra sprotafyrirtækja og sinnt fjölbreyttum leiðtogahlutverkum á mörkum vísinda og nýsköpunar.
Í gegnum Fönn Ráðgjöf veitir hún sprotafyrirtækjum í líf- og heilbrigðistækni allhliða stuðning með því að efla leiðtogafærni og styðja við fyrirtækjauppbyggingu.
Sandra mun veita innsýn inn í heim þar sem vísindi og nýsköpun mætast og deila reynslusögum úr eigin vegferð frá rannsóknum til frumkvöðlastarfa, stjórnunar og ráðgjafar.
Heitt á könnunni og nýbakaðar vöfflur í boði!
/
Join us at Mýrin (The Science Park Innovation Centre, Gróska, 1st floor) this Friday for a visit from Dr. Sandra Mjöll Jónsdóttir-Buch from FÖNN Consulting.
Sandra is an entrepreneur, executive coach, and consultant with extensive experience across Iceland’s innovation and life science ecosystem. Throughout her career, she has contributed to the development and mentoring of numerous startups and held diverse leadership roles at the intersection of science and innovation.
Through FÖNN Consulting, she supports life science and health technology startups by strengthening leadership capabilities and helping founders navigate company building and growth.
Sandra will offer insights into the world where science and innovation meet and share stories from her own journey from research into entrepreneurship, leadership, and consulting.
We’ll also have freshly brewed coffee and waffles waiting for you!