Cover Image for Nýsköpun & ný tengsl - Sauðárkrókur
Cover Image for Nýsköpun & ný tengsl - Sauðárkrókur
29 Went

Nýsköpun & ný tengsl - Sauðárkrókur

Hosted by Bryndis Alexanders
Registration
Past Event
Welcome! To join the event, please register below.
About Event

​
DAGSKRÁ:

​Fjögur stutt og hnitmiðuð 15 mínútna erindi

​– KLAK kynnir sín verkefni en þau halda úti metnaðarfullri dagskrá árið um kring fyrir einstaklinga með hugmyndir og fyrirtæki í vexti, þátttakendum að kostnaðarlausu.

​–  Tækniþróunarsjóður kynnir styrki fyrir nýsköpunarverkefni – frá hugmynd að markaði.

​– Íslandsstofa segir frá aðgangi að alþjóðamörkuðum, erlendum fjármögnunartækifærum og hvernig byggja má upp öflugt tengslanet fyrir vöxt fyrirtækja.

​– Vísindagarðar HÍ kynna stuðningsumhverfi sitt, nýsköpunarsamfélagið Mýrina og uppbyggingu nýs djúptækniseturs.

​Að loknum erindum gefst góður tími fyrir spurningar, samtal og tengslamyndun. Tækifæri til að ræða eigin verkefni, fá ráðgjöf og tengjast beint fulltrúum stofnananna.

​Fyrir hverja?

​Viðburðurinn er opinn öllum og ókeypis – sérstaklega ætlaður þeim sem:

​- eru með nýsköpunar- eða viðskiptahugmynd

​- eru að stíga sín fyrstu skref

​- eða vilja þróa verkefni sitt áfram og sækja á nýja markaði

​Viðburðurinn er partur af hringferðinni "Nýsköpun & Ný Tengsl" sem skapar vettvang fyrir samtal, miðlun upplýsinga og tengslamyndun milli frumkvöðla, fyrirtækja og lykilaðila í nýsköpunarumhverfinu.

Location
Kaffi Krókur
Aðalgata 16, 550 Sauðárkrókur, Iceland
29 Went