Cover Image for Spítalinn okkar bíður til málþings: Framtíðin er stafræn - Hvernig styrkir tækni nýjan Landspítala og heilbrigðiskerfið
Cover Image for Spítalinn okkar bíður til málþings: Framtíðin er stafræn - Hvernig styrkir tækni nýjan Landspítala og heilbrigðiskerfið

Spítalinn okkar bíður til málþings: Framtíðin er stafræn - Hvernig styrkir tækni nýjan Landspítala og heilbrigðiskerfið

Hosted by Þorkell Sigurlaugsson
Registration
Past Event
Welcome! To join the event, please register below.
About Event

Landsamtökin Spítalinn Okkar boða til málþings með titlinum: Framtíðin er stafræn- Hvernig styrkir tækni nýjan Landspítala og heilbrigðiskerfið.

Ókeypis er á viðburðinn og hvetjum við alla til að mæta.

Dagskrá:

15:35 Stafræn heilsa Fjallað verður um tilurð og markmið Stafrænnar heilsu, helstu verkefni og framtíðarsýn.

Sigurður Þórarinsson, forstöðumaður stafrænnar heilsu hjá Heilbrigðisráðuneytinu.

16:00 Nýjasta tækni og vísindi Stafræn framþróun í nútið og framtíð frá sjónarhóli læknis.

Arnar Þór Guðjónsson, yfirlæknir háls, nef- og eyrnalækninga Landspítala.

16:20 Staða framkvæmda NLSH - Mars 2026 Farið verður yfir stöðu framkvæmda við Hringbraut þar sem verið er að byggja nýjan meðferðarkjarna, rannsóknarhús, bílastæðahús og viðbyggingu við Læknagarð. Jafnframt verður farið yfir stöðu framkvæmda við Grensás, bráðamóttöku í Fossvogi og útboð á viðbyggingu við sjúkrahúsið á Akureyri.

Ólafur M Birgisson, sviðsstjóri framkvæmdasviðs NLSH.

16:40 Nýr Landspítali til framtíðar Uppbyggingarverkefni Nýs Landspítala sem fylgja á eftir meðferðarkjarna og rannsóknahúsi. Það felur í sér m.a. nýja geðþjónustu Landspítala, uppbyggingu aðstöðu fyrir dag- og göngudeilaþjónustu, viðbætur við legurými, bætta aðstöðu til krabbameinslækninga og öldrunarlækninga auk ýmissa stoðeininga rekstrarins.

Ásgeir Margeirsson, formaður stýrihóps um þróun uppbyggingu Landspítala.

17:00-17:10 Stutt hlé og fyllt á kaffibollann

17:10 Pallborðsumræður og spurningar

17:30 Lokaorð formanns Þorkell Sigurlaugsson, formaður Spítalans okkar.

17:40 Fundarslit

Fundarstjóri: Áslaug Eva Björnsdóttir, ráðgjafi og teymisþjálfi og stjórnarkona Spítalans okkar.

Málþingið verður haldið í Grósku við Bjargargötu 1. Fundarherbergið er á 1. hæð í Mýrinni í fundarherberginu Fenjamýri

Location
Gróska Vísindagarðar HÍ, Bjargargötu 1.