Cover Image for Aðalfundur Samtaka um mannvæna tækni
Cover Image for Aðalfundur Samtaka um mannvæna tækni
Avatar for Samtök um mannvæna tækni
20 Went
Gamithra Marga
invites you to join

Aðalfundur Samtaka um mannvæna tækni

Registration
Past Event
Welcome! To join the event, please register below.
About Event

Aðalfundur Samtaka um mannvæna tækni verður haldinn miðvikudaginn 19. ágúst kl 17:00-18:30 í Wasabi fundarrýminu í Hafnarhaus, Tryggvagötu 17, 2. hæð.

Á fundinum fer m.a. fram kosning stjórnar og skoðunarmanns ársreikninga. Þeir sem hafa verið skráðir í félagið í síðasta lagi tveimur vikum fyrir aðalfund hafa atkvæðisrétt og geta einnig boðið sig fram. Hægt verður að bjóða sig fram á fundinum.

Á dagskrá fundarins eru hefðbundin aðalfundarstörf:

  • Skýrsla stjórnar um störf samtakanna á liðnu starfsári.

  • Framlagning og samþykkt ársreikninga.

  • Tillögur að lagabreytingum.

  • Kosning stjórnar.

  • Ákvörðun félagsgjalda.

  • Önnur mál.

Ef útlit verður fyrir mjög góða mætingu munum við skoða að færa fundinn í stærri sal/húsnæði og látum skráða þátttakendur vita með góðum fyrirvara.

Það eru spennandi tímar fram undan hjá Samtökum um mannvæna tækni. Við erum í mikilli uppbyggingu á sama tíma og samfélagið stendur frammi fyrir stórum ákvörðunum um þróun og innleiðingu gervigreindar. Okkar markmið er að byggja upp öfluga hreyfingu sem tryggir að mannvæn sjónarmið fái áheyrn þegar þessar ákvarðanir eru teknar.

Location
hafnar.haus
Hafnarhúsinu, Tryggvagata 17, 101 Reykjavík, Iceland
Wasabi fundarherbergi. Inngangur A.
Avatar for Samtök um mannvæna tækni
20 Went