Cover Image for From pitch to investment: Who gets a yes, and why? / Frá kynningu til fjárfestingar - hver fær já og af hverju?
Cover Image for From pitch to investment: Who gets a yes, and why? / Frá kynningu til fjárfestingar - hver fær já og af hverju?
Avatar for Innovation Week
Presented by
Innovation Week
75 Went

From pitch to investment: Who gets a yes, and why? / Frá kynningu til fjárfestingar - hver fær já og af hverju?

Registration
Past Event
Welcome! To join the event, please register below.
About Event

​NOTE the event is in Icelandic!

​Hreinskilið samtal á milli frumkvöðla og fjárfesta um það sem raunverulega ræður úrslitum!

​Nýsköpunarsjóðurinn Kría og FKA-félag kvenna í atvinnulífinu standa fyrir þessum viðburði á Iceland Innovation Week sem frumkvöðlar og fjárfestar ættu ekki að láta fram hjá sér fara.

​Hrönn Greipsdóttir, forstjóri Nýsköpunarsjóðsins Kríu, mun halda opnunarerindi fundarins. Þá munu reynslumiklir frumkvöðlar og fjárfestar stíga á svið og deila sinni reynslu og svara spurningum.

​Fjárfestar
Ásthildur Otharsdóttir, fjárfestir og meðeigandi hjá Frumtaki. Hún situr m.a. í stjórnum Controlant, Öldu og Treble.

​Marinella Haraldsdóttir, fjárfestir og framkvæmdastjóri AtWork ehf. Hún situr í stjórn félagasamtaka íslenskra englafjárfesta IceBAN, Reykjafells og AF2 slhf., fjárfestingasjóðs í eigu Alfa Framtaks ehf.

​Hreinn Þór Hauksson, framkvæmdastjóri AxUM Verðbréfa hf. og sérfræðingur í eignar- og sjóðastýringu og fjárfestingum, uppbyggingu frumkvöðlafyrirtækja og nýsköpunarverkefna. Enn fremur er Hreinn sjóðstjóri nýsköpunar- og vaxtarsjóðsins Landvætta slhf.

​Frumkvöðlar
Ósvald Knudsen, forstjóri og meðstofandi Laki Power sem þróar eftirlitsbúnað fyrir háspennulínur sem hjálpar rekstraraðilum raforkuvera að greina og bregðast við alvarlegum ógnum eins og ísingu og skógareldum í rauntíma. Ósvald leiðbeinir jafnframt sprotafyrirtækjum á frumstigi í gegnum Klak Venture Mentoring.

​Fida Abu Libdeh, stofnandi og framkvæmdastýra GeoSilica Iceland, nýsköpunarfyrirtækis sem vinnur verðmæt steinefni úr jarðhitavatni með sjálfbærum hætti.

​Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Tulipop og annar stofnenda Tulipop, sem er fyrirtækið á bak við samnefnan íslenskan ævintýraheim.

​Edda Lára Lúðvígsdóttir, fjárfestingastjóri hjá Nýsköpunarsjóðnum Kríu, mun stýra samtalinu.

​Mælum með að skrá sem fyrst!

Location
Íslandsstofa
Bjargargata 1 102, 101 Reykjavík, Iceland
Top floor
Avatar for Innovation Week
Presented by
Innovation Week
75 Went