

From pitch to investment: Who gets a yes, and why? / Frá kynningu til fjárfestingar - hver fær já og af hverju?
NOTE the event is in Icelandic!
Hreinskilið samtal á milli frumkvöðla og fjárfesta um það sem raunverulega ræður úrslitum!
Nýsköpunarsjóðurinn Kría og FKA-félag kvenna í atvinnulífinu standa fyrir þessum viðburði á Iceland Innovation Week sem frumkvöðlar og fjárfestar ættu ekki að láta fram hjá sér fara.
Hrönn Greipsdóttir, forstjóri Nýsköpunarsjóðsins Kríu, mun halda opnunarerindi fundarins. Þá munu reynslumiklir frumkvöðlar og fjárfestar stíga á svið og deila sinni reynslu og svara spurningum.
Fjárfestar
Ásthildur Otharsdóttir, fjárfestir og meðeigandi hjá Frumtaki. Hún situr m.a. í stjórnum Controlant, Öldu og Treble.
Marinella Haraldsdóttir, fjárfestir og framkvæmdastjóri AtWork ehf. Hún situr í stjórn félagasamtaka íslenskra englafjárfesta IceBAN, Reykjafells og AF2 slhf., fjárfestingasjóðs í eigu Alfa Framtaks ehf.
Hreinn Þór Hauksson, framkvæmdastjóri AxUM Verðbréfa hf. og sérfræðingur í eignar- og sjóðastýringu og fjárfestingum, uppbyggingu frumkvöðlafyrirtækja og nýsköpunarverkefna. Enn fremur er Hreinn sjóðstjóri nýsköpunar- og vaxtarsjóðsins Landvætta slhf.
Frumkvöðlar
Ósvald Knudsen, forstjóri og meðstofandi Laki Power sem þróar eftirlitsbúnað fyrir háspennulínur sem hjálpar rekstraraðilum raforkuvera að greina og bregðast við alvarlegum ógnum eins og ísingu og skógareldum í rauntíma. Ósvald leiðbeinir jafnframt sprotafyrirtækjum á frumstigi í gegnum Klak Venture Mentoring.
Fida Abu Libdeh, stofnandi og framkvæmdastýra GeoSilica Iceland, nýsköpunarfyrirtækis sem vinnur verðmæt steinefni úr jarðhitavatni með sjálfbærum hætti.
Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Tulipop og annar stofnenda Tulipop, sem er fyrirtækið á bak við samnefnan íslenskan ævintýraheim.
Edda Lára Lúðvígsdóttir, fjárfestingastjóri hjá Nýsköpunarsjóðnum Kríu, mun stýra samtalinu.
Mælum með að skrá sem fyrst!